Fangelsið á Hólmsheiði formlega opnað 10. júní 2016
Fangelsið á Hólmsheiði var formlega tekið í notkun við hátíðlega athöfn föstudaginn 10. júní sl. Fjöldi gesta var viðstaddur athöfnina.
Fangaverðir stóðu heiðursvörð
Fangelsið leysir af hólmi móttökufangelsið Hegningarhúsið og Fangelsið Kópavogsbraut 17 þar sem kvenfangar voru vistaðir. Í fangelsinu verða 56 fangapláss. Þar munu gæsluvarðhaldsfangar verða vistaðir og gæsluvarðhaldsdeildin á Litla-Hrauni þá lögð niður. Sérstök deild er fyrir kvenfanga og þá sem afplána stuttar fangelsisrefsingar og vararefsingar fésekta. Stefnt er að því að fyrstu fangarnir komi í ágúst og sérstök áhersla verður lögð á að taka kvenfanga fyrst inn. Með tilkomu fangelsisins lýkur meira en 50 ára byggingarsögu fangelsis á Reykjavíkursvæðinu, en það mun hafa verið Bjarni Benediktsson, þáverandi dómsmálaráðherra, sem vildi byggja fangelsi í Reykjavík árið 1962.
Guðmundur Gíslason, forstöðumaður fangelsisins bauð gesti velkomna fyrir hönd innanríkisráðuneytisins og fór yfir dagskrána sem var með eftirfarandi hætti:
Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, flutti ávarp þar sem meðal annars kom fram að við hönnun fangelsisins hafi öryggi fanga og starfsmanna verið haft að leiðarljósi ásamt því að leggja áherslu á mannúðlega afplánun fanga með það að markmiði að fanginn komi betri út í samfélagið á ný og fækka þar með endurkomum.
Þá tók til máls Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins, fyrir hönd Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns bygginganefndar fangelsisins. Fór hún meðal annars yfir byggingasögu fangelsisins.
Jón Ingi Jónsson, formaður Fangavarðafélags Íslands, flutti kveðju frá félagsmönnum.
Að lokum tók Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, til máls og opnaði fangelsið með formlegum hætti. Ávarp ráðherra.
Á milli atriða flutti RR-kvartettinn lögin Skjaldbreið og Ferðalok en hið síðara átti einkar vel á þessum tímamótum þar sem segja má að lokið sé rúmlega 50 ára vegferð undirbúnings byggingar fangelsis á höfuðborgarsvæðinu. Þá hitti lagið skemmtilega á þar sem Evrópumeistamótið í knattspyrnu í Frakklandi hófst sama dag og Íslendingar taka þátt í fyrsta sinn en lagið hefur einmitt verið einkennislag liðsins.
Við þetta tækifæri færði listamaðurinn Tolli fangelsinu málverk að gjöf en hann hefur um árabil sinnt AA-starfi í fangelsum ríkisins.
Sjá nánari upplýsingar á síðu innanríkisráðuneytisins
Sjá upplýsingar Framkvæmdasýslu ríkisins um hið nýja fangelsi