Fréttir

AA ráðstefna haldin á Litla-Hrauni

24.11.2008

Laugardaginn 22. nóvember 2008 var haldin AA ráðstefna í Íþróttahúsinu í Fangelsinu Litla-Hrauni milli kl. 10:00 til 14:30

AA deild fanga, Brúin, stóð fyrir ráðstefnunni og tóku um 60 manns þátt í henni, 40 fangar og 20 gestir. Ræðumenn voru úr hópi fanga og gesta og sáu fangar sjálfir um allar veitingar, þar á meðal afbragðs súpu í hádeginu. Blómlegt AA starf er í Fangelsinu Litla-Hrauni og mæta margir utanaðkomandi AA menn reglulega á fundi sem haldnir eru á Litla-Hrauni í viku hverri til að deila reynslu sinni með föngum.



Senda grein