Fréttir

Ráðstefna um málefni fanga verður haldin 4. maí 2007 í Hótel Örk, Hveragerði.

27.4.2007

Ráðstefna um málefni fanga verður haldin í Hótel Örk, Hveragerði, föstudaginn 4. maí nk. frá kl. 09:00 - 15:00. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Nýjar leiðir við afplánun - Önnur úrræði en fangelsi.

Að ráðstefnunni stendur samráðsnefnd um málefni fanga. Í nefndinni sitja fulltrúar frá: Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Fangelsismálastofnun ríkisins, Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Þjónustumiðstöð Breiðholts, Landlæknisembættinu, Rauða krossi Íslands, Lögreglunni í Reykjavík, Fangavarðafélaginu, fangapresti, Samhjálp og Vernd.

Dagskrá:

09:00 - 09.30   Skráning og afhending ráðstefnugagna

Fundarstjóri:    Ellý A. Þorsteinsdóttir skrifstofustjóri á Velferðarsviði Reykjavíkur

 

09.30 - 09.50      Ráðstefnusetning

09.50 - 10.10      Önnur úrræði innan fangelsiskerfisins”

                         Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar

10.10 - 10.30      “Samfélagsaðlögun á Sólheimum”

                         Sr. Birgir Thomson á Sólheimum

10:30 – 10:50     Kaffihlé

10:50 –11:10      Sáttaumleitanir í tengslum við afbotamenn”

                         Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson hjá embætti Lögreglustjóra á

                         höfuðborgarsvæðinu

11:10 - 12:00     Að dæma í vímuefnameðferð”

                         Tim McSweeny, research fellow við Institute for Criminal Policy Research,

                         University King’s College, London

 

12:00 – 13:00   Hádegisverður

 

Fundarstjóri:    Þráinn Farestsveit framkvæmdastjóri Verndar

13:00 – 14:00     "Ten years after the Dutroux case in Belgium : the never ending story

                         of trial and error to recover the balance?”

                         In search of restorative justice, alternatives, overcrowding and courts

                         for the execution of sentences

                         John Vanacker, judge in the Court for the execution of sentences, Brussels

14:00 – 14:15     Tónlistaratriði

14:15 – 15:00     Umræður og fyrirspurnir

15:00 - 15.30     Ráðstefnuslit, kaffi og léttar veitingar

                         Tineke Koers geðhjúkrunarfræðingur á Litla Hrauni og forsvarsmaður

                         Samráðshóps um málefni fanga

 

Þátttökugjald og skráning:

Kr. 4.500, innifalið eru ráðstefnugögn, hádegisverður og kaffi.

 

  • Þátttökugjald er greitt á staðnum.
  • Skráning fer fram hjá Ástu Hreinsdóttur í Fangelsismálastofnun í síma 520-5000

     eða í tölvupósti:  astah@tmd.is

  • Við skráningu í tölvupósti væri gott ef fram kæmi nafn, starfsheiti, vinnustaður og netfang.
  • Vinsamlegast skráðið ykkur eigi síðar en  mánudaginn 30. apríl.

 



Senda grein