Enn eitt aðsóknarmetið að menntun í fangelsum á síðastliðnu skólaári
Enn eitt aðsóknarmetið að menntun í fangelsum var slegið á skólaárinu 2013-2014. Alls innrituðust í nám á Litla-Hrauni og Sogni 68 nemendur á haustönn 2013. Þar af voru fjórir í háskólanámi, en hinir 64 voru skráðir í nám á vegum Fjölbrautaskólans á Selfossi (FSu). Á vorönn 2014 voru samtals 70 nemendur innritaðir í nám; fjórir í háskólanám, 65 í nám á vegum FSu og einn í nám á vegum Menntaskólans í Kópavogi (MK).
Í Fangelsinu Akureyri stunduðu 9 nemendur lengra eða skemmra nám (fjarnám) á síðastliðnu skólaári. Í Fangelsinu Kópavogsbraut 17 stunduðu 12 nemendur eitthvert nám á sama tímabili, annað hvort í kennslutímum hjá kennurum MK sem koma í fangelsið til að kenna eða í fjarnámi. Í Fangelsinu Kvíabryggju stunduðu 28 nemendur nám á síðastliðnu skólaári og þar eins og annars staðar eru nemendur að innrita sig allt skólaárið og eru mislengi í námi.
Skólahald á Litla-Hrauni og Sogni:
Á haustönn sinntu samtals fjórir kennarar frá FSu staðbundinni kennslu á Sogni auk þess sem Ingis Ingason, kennslustjóri beggja fangelsa og Anna Fríða Bjarnadóttir, náms- og starfsráðgjafi allra fangelsa, komu þangað einu sinni í viku sinn daginn hvort. Á Litla-Hrauni sinntu sex kennarar við FSu staðbundinni kennslu auk kennslustjóra. Starfsaðstaða kennslustjóra og náms- og starfsráðgjafa er á Litla-Hrauni. Auk framangreindra kennara komu sjö kennarar frá FSu að fjarnámi í samtals 17 áföngum í fangelsunum báðum.
Á vorönn sinntu fjórir kennarar staðbundnu námi á Sogni auk þess sem Hjördís Árnadóttir, nýr náms- og starfsráðgjafi og Ingis, kennslustjóri, fóru þangað einu sinni í viku. Á Litla-Hrauni kenndu fimm kennarar einu sinni til tvisvar sinnum í viku hverri og einn kennari kom á hálfsmánaðar fresti frá FSu til að kenna grunnteikningu. Enginn fangi sótti nám við dagskóla FSu á Selfossi á önninni en allnokkur hópur fanga í báðum fangelsunum naut fjarkennslu tíu kennara við FSu.
Allt skólaárið er verið að innrita nemendur og þreyta þeir próf þegar þeir teljast próftækir í viðkomandi áfanga. Á sama hátt eru nemendur líka að losna úr fangelsunum áður en önnum lýkur og er þá reynt að taka þá til prófs áður en þeir losna, en í undantekningartilvikum þreyta þeir próf á Selfossi að lokinni afplánun.
Einkunnadreifing, þar sem nemendur skiluðu sér til prófs, var eftirfarandi:
Einkunn |
10 |
9 |
8 |
7 |
6 |
5 |
4 |
3 |
2 |
1 |
Fjöldi | 5 | 14 | 9 | 25 | 6 | 3 | 4 | 1 | 1 | 0 |
Af þessum tölum má ráða, að nemendur í fangelsum eru almennt ekki að þreyta próf nema þeir hafi tileinkað sér námsefnið allvel. Einnig er ljóst orðið, að sú ákvörðun að taka nemendur inn í skólann nánast alla önnina er að skila sér í stöðnum einingum.