Sveitarstjórn Flóahrepps ásamt atvinnu- og umhverfisnefnd sveitarfélagsins heimsótti Bitru
Sveitarstjórnin kom í heimsókn á Bitru á ferð sinni um sveitarfélagið til að kynna sér mismunandi atvinnurekstur 8. október sl.
Margrét Frímannsdóttir og Einar Valur Oddsson kynntu starfsemina á Bitru m.a. glæsilega skartgripasmíði hjá einum vistmanna sem vinnur muni úr hraungrýti Eyjafjallajökuls og silfri. Sjá nánar: http://www.floahreppur.is/Frettir/1477/
Á Bitru er unnið eftir sérstakri umhverfisstefnu sem fangar taka virkan þátt í. Þeir sjá sjálfir um eldamennsku, þrif, þvotta og annað sem viðkemur almennu húshaldi, ásamt viðhaldsverkefnum innandyra og snyrtingu útivistarsvæðis. Má þar nefna málningarvinnu á klefum, garðrækt, garðslátt o.fl.
Settar voru niður kartöflur í vor og var uppskeran mjög góð eða um 800 kg.