Fréttir

Haldið var upp á 80 ára afmæli Fangelsisins Litla-Hrauni í gær

9.3.2009

Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, Páll E. Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar og Stefán Eiríksson ásamt mökum skemmtu sér vel á skemmtidagskrá í tilefni af 80 ára afmæli Litla-Hrauns 9. mars 2009. Myndina tók Þráinn Farestveit

 

Haldið var upp á 80 ára afmæli Fangelsisins Litla-Hrauni með pompi og pragt í íþróttasal fangelsisins í gær. Forstöðumaður fangelsisins, Margrét Frímannsdóttir, bauð gesti velkomna. Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar og Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra ávörpuðu gesti.

 

 

 

 

 

Forstöðumaður LH, Margrét Frímannsdóttir, ávarpar gesti

 Burstabærinn á Litla-Hrauni var teiknað af Guðjóni Samúelssyni og átti að verða sjúkrahús

 

 

 

 

 Forstjóri FMS, Páll E. Winkel, ávarpar gestiDómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, ávarpar gesti

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fangelsið var sett á laggirnar 8. mars 1929. Afmælið var haldið í íþróttasal fangelsisins og var salurinn skreyttur myndum og listmunum sem fangar hafa gert. Tónlistaratriði var í boði fanga og stjórn Afstöðu, félags fanga, hjálpaði til við veitingar. Sr. Hreinn Hákonarson, fór yfir 80 ára sögu fangelsisins og nokkur skondin atvik í sögu þess.

StarfFrá vinstri: Sigurður Steindórsson, Ari B. Thorarensen, Jóhann Ágústsson, Hafþór Gestsson, Jón Sigurðsson, Rúnar Eiríksson, Guðjón Haukur Stefánsson, S. Margrét Steingrímsdóttir, Kristján Gíslason og Friðrik Sigurjónsson. Á myndina vantar Þór Hafdal.smönnum sem unnið hafa yfir 20 ár var veitt viðurkenning fyrir vel unnin störf. Fyrrverandi forstöðumenn á Litla-Hrauni: Helgi Gunnarsson, Kristján Stefánsson, Jón E. Böðvarsson og Gústav Lilliendahl

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jón Sigurðsson, deildarstjóri flutti fráfarandi forstöðumanni, Kristjáni Stefánssyni, þakkir frá starfsmönnum.

Sveitarstjórinn í Árborg og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu þökkuðu góða samvinnu við fangelsið og óskuðu starfsmönnum og vistmönnum heilla í framtíðinni.

Sjá nánar:

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/03/08/80_ara_afmaeli_litla_hrauns/

 

Seinni part dagsins komu svo ýmsir skemmtikraftar, Hemmi Gunn, Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson o.fl. til að skemmta föngum.

 

Sjá nánari upplýsingar um fangelsið: /fangelsi-rikisins/fangelsid-litla-hrauni/



Senda grein