Dómsmálaráðherra Litháens, Petras Baguska, heimsótti Fangelsismálastofnun og Fangelsið Litla-Hrauni þegar hann dvaldi hér á landi í boði Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra
Petras Baguska, dómsmálaráðherra Litháens, átti í gær fund með Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra, Haraldi Johannessen, ríkislögreglustjóra, og Páli E. Winkel, forstjóra Fangelsismálastofnunar. Á fundinum var meðal annars rætt um aukna samvinnu á sviði fangelsismála en unnið er að flutningi Litháa, sem dæmdir hafa verið hér á landi til fangavistar, til afplánunar í heimalandi sínu.
Jafnframt komu dómsmálaráðherra Litháens, ásamt yfirmönnum fangelsis- og lagamála í ráðuneyti hans, í heimsókn í Fangelsismálastofnun en þeir höfðu sérstakan áhuga á að kynna sér fangelsismál, meðal annars löggjöf um reynslulausnir en þeir hafa áhuga á að taka Ísland sér til fyrirmyndar í þeim efnum.
Þá heimsóttu þeir Fangelsið Litla-Hrauni til að kynna sér starfsemi fangelsisins og ræddu jafnframt við samlanda sína sem eru nú sjö talsins sem þar afplána refsingu.
Samtals afplána nú 17 dómþolar með erlent ríkisfanga refsingu í fangelsum ríkisins og fjórir sæta gæsluvarðhaldi.