Laganemar úr Háskólanum í Reykjavík í heimsókn á Litla-Hrauni
Föstudaginn 25. apríl síðastliðinn kom hópur laganema frá Háskólanum í Reykjavík í heimsókn í Fangelsið Litla-Hrauni ásamt kennara sínum.
Tæplega 40 nemendur H.R. heimsækja fangelsið á þessu vori, skoða aðstæður og funda með stjórn Afstöðu, félagi fanga. Hópnum er skipt þannig að tíu nemar eru í hverjum hóp. Fyrsti hópurinn kom þriðjudaginn 22. apríl, annar 25. apríl, þriðji kemur 29. apríl og sá fjórði 2. maí næstkomandi.
Nemendur færðu fangelsinu 10 DVD með nýjum kvikmyndum og þáttum.
Þá mun fyrsta birkiplantan sem gróðursett verður í umhverfisátaki á Litla-Hrauni verða frá Háskólanum í Reykjavík.