Fréttir

Nefnd um framtíðarrekstur Fangelsisins Litla-Hrauni hefur lokið störfum.

8.11.2007

Nefnd sem dóms- og kirkjumálaráðherra, Björn Bjarnason, skipaði í október á síðasta ári til að leggja fram tillögur um framtíðarrekstur Fangelsisins Litla-Hrauni hefur lokið störfum og skilað skýrslu til dómsmálaráðherra.

Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, var skipaður formaður nefndarinnar en aðrir í nefndinni voru Margrét Sæmundsdóttir, verkefnisstjóri hjá Fangelsismálastofnun, Sigurjón Birgisson, formaður Fangavarðafélags Íslands og Anna Sigríður Arnardóttir, þá starfandi lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Í júlí 2007 tók Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögfræðingur í ráðuneytinu, sæti Önnu Sigríðar. Starfsmaður nefndarinnar var Marta Margrét Ö. Rúnarsdóttir laganemi.

Í skýrslu nefndarinnar kemur m.a. fram að hún telur nauðsynlegt að endurskoða stjórnskipulag fangelsisins, að efla öryggisþáttinn í starfsemi þess, að móta skýra starfsmannastefnu og að vinna markvisst að endurhæfingu fanga. Nefndin telur mikilvægt að kvenfangar eigi möguleika á því að afplána refsivist í sérstöku kvennafangelsi. Þá telur nefndin að ef talin er þörf á að vista kvenfanga á Litla-Hrauni sé brýnt að taka tillit til þess í allri endurskipulagningu og uppbyggingu fangelsisins.

Gengið hefur verið frá samkomulagi við Margréti Frímannsdóttur um að hún komi til starfa fyrir Fangelsismálastofnun til að vinna að því að hrinda í framkvæmd niðurstöðum nefndarinnar. Í þeirri vinnu verður litið til skýrslu Margrétar Sæmundsdóttur og Sigbjorns Hagen frá 2005 varðandi fangelsið og tillögum stofnunarinnar um uppbyggingu á staðnum. Þau mál sem Margrét Frímannsdóttir á sérstaklega að vinna að eru eftirfarandi:

  • Öryggismál í fangelsinu.
  • Uppbygging atvinnu fanga með tilliti til framboðs og fjölbreytni.
  • Aðstaða fyrir kvenfanga m.a. með tilliti til öryggis þeirra, vinnu og starfsaðstöðu og möguleika til þess að nýta sér það sem fangelsið býður upp á í meðferð, atvinnu, námi og afþreyingu.
  • Breytt hlutverk fangavarða, sem tekur mið af nýjum áherslum í fangelsismálum og kalla á breytt samskiptaform, sveigjanlegt vinnufyrirkomulag og vaktaskipan sem taki mið af breytanlegri starfsemi fangelsisins. Við útfærslu þessa þáttar nýtur hún sérstakrar aðstoðar Sigurðar Helgasonar, Stjórnarháttum ehf., samkvæmt sérstökum samningi við hann þar um.


Senda grein