Námskeiði um fangelsi og karlmennsku á Litla-Hrauni lokið
Á námskeiðinu var fjallað um daglegt líf karla í fangelsi og hvernig eða hvort það móti þá; karlmennskuna og hvað hún fæli í sér. Rætt var um fyrirmyndir karla og framtíðarsýn, tilfinningalíf þeirra, samtöl þeirra, reiði og ótta, föðurímynd þeirra og hvernig feður þeir eru, hugmyndir þeirra um konur og viðhorf til lífsins, hættur í lífinu eins og ofbeldi og sjálfsvíg. Þá var rætt um heilsu karla, tilfinningalega og líkamlega.
Þátttakendur fengu bókina Heilsa karla afhenta ókeypis á námskeiðinu.
Alls sautján fangar skráðu sig á námskeiðið en þátttaka var því miður slök. Alla jafna mættu fimm fangar og flestir voru þeir sjö. Þátttakendur á námskeiðinu voru ánægðir með það og stóðu sig með prýði. Námskeiðið tókst því vel og er það gleðilegt. Vonandi koma fleiri á næsta námskeið sem verður í haust.
Fangaprestur fékk góðfúslega léðan skjávarpa Fangelsismálastofnunar til að nota á námskeiðinu og þakkar kærlega fyrir það.
Hreinn S. Hákonarson,
fangaprestur þjóðkirkjunnar
http://www.kirkjan.is/annall/fangaprestur/starf