Afplánun hjá Vernd

Afplánun hjá Félagasamtökunum Vernd

Samkvæmt 31. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016 getur Fangelsismálastofnun geti leyft fanga að afplána utan fangelsis hluta refsitímans, enda stundi hann vinnu, nám, starfsþjálfun eða meðferð sem Fangelsismálastofnun hefur samþykkt og er liður í aðlögun hans að samfélaginu að nýju, búi á sérstakri stofnun eða heimili þar sem hann er undir eftirliti.

Fangelsismálastofnun setur nánari reglur um forsendur og skilyrði slíkrar vistunar. Skal fangi samþykkja skriflega skilyrði fyrir vistuninni. Fangi skal greiða gjöld sem slíkar stofnanir eða heimili innheimta hjá vistmönnum.


Frá árinu 1995 hefur Fangelsismálastofnun vistað fanga á Áfangaheimili Verndar að Laugateigi 19 í Reykjavík samkvæmt samkomulagi við Félagasamtökin Vernd. Markmið þessa úrræðis er m.a. það að fanganum gefist kostur á því að aðlagast samfélaginu smám saman. Fangelsismálastofnun metur hvort umsækjandi uppfylli skilyrði til afplánunar á áfangaheimilinu. Það er forsenda fyrir því að fangi fái að afplána á áfangaheimilinu að hann samþykki þau skilyrði sem gilda um vistun þar og undirriti samning þar um.

Telji Fangelsismálastofnun umsækjanda ekki uppfylla skilyrði til vistunar þar er sú ákvörðun kæranleg til Innanríkisráðuneytisins. Auk samþykkis Fangelsismálastofnunar er afplánun á áfangaheimilinu háð því skilyrði að húsnefnd Verndar samþykki umsóknina. Telji húsnefnd umsækjanda ekki hæfan til afplánunar á áfangaheimilinu er sú ákvörðun endanleg.

Rjúfi fangi þau skilyrði sem honum eru sett fyrir vistun utan fangelsis getur Fangelsismálastofnun ákveðið að hann verði fluttur aftur í afplánun í fangelsi. Sama gildir telji stofnun eða heimili brostnar forsendur fyrir áframhaldandi dvöl fanga þar.

Um vistun þessa gilda reglur um afplánun á Áfangaheimili Verndar sem tóku gildi 13. janúar 2017. Í reglunum kemur m.a. fram að fangi sem afplánar refsivist á áfangaheimilinu skuli fylgja húsreglum Verndar.

Móttaka nýrra vistmanna fer fram á mánudögum og fimmtudögum í stað sunnudaga og miðvikudaga áður. Heimilismenn skulu ætíð vera inni í húsinu milli kl. 18 og 19 á virkum dögum og frá kl. 23 öll kvöld til kl. 07 að morgni.


 

Fjöldi þeirra sem vistaðir eru á Vernd árin 1995 - 2016:

´95

´96

´97

´98

´99

´00

´01

´02

´03

´04

´05

´06

´07

´08

´09

´10

´11

´12 

 ´13

´14 ´15 ´16 

31

60

43

42

47

37

43

43

68

68

73

77

51

54

56

52

 71

 74

79

82

 72

 49

Þar af fjöldi þeirra sem rjúfa:

´95

´96

´97

´98

´99

´00

´01

´02

´03

´04

´05

´06 ´07

´08

´09

 ´10

´11

´12 ´13 ´14 ´15  ´16 

3

5

5

8

14

4

6

7

6

7

10

10

6

7

8

 5

 8

7

 9


8

14

 9


Upplýsingar um meðaltal fanga:  Sjá töflur 8a - 8e í ársskýrslum stofnunarinnar

 og súlurit undir áhugaverðar tölur


Senda grein