Samfélagsþjónusta í stað fangelsisrefsingar
Samkvæmt 37. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016 er heimilt, ef almannahagsmunir mæla ekki gegn því að fullnusta allt að 12 mánaða óskilorðsbundna fangelsisrefsingu með ólaunaðri samfélagsþjónustu, minnst 40 klukkustundur og mest 480 klukkustundir.
-
Ofangreind lög tóku gildi 30. mars 2016 þar sem hámarksrefsing sem unnt er að fullnusta með samfélagsþjónustu var hækkuð úr 9 mánuðum í 12 mánaða fangelsi. Þann 1. október 2011 tóku gildi lög um breytingu á þágildandi lögum um fullnustu refsinga nr. 49/2005 þar sem hámarksrefsing sem unnt var að fullnusta með samfélagsþjónustu var hækkuð úr 6 mánuðum í 9 mánaða fangelsi.
Þegar um fangelsisrefsingu samkvæmt fleiri en einum dómi er að ræða má samanlögð refsing ekki vera lengri en 12 mánuðir. Ef hluti fangelsisrefsingar er skilorðsbundinn má heildarrefsing samkvæmt dóminum ekki vera lengri en 12 mánuðir.
Þegar dómþola er sent bréf þar sem hann er boðaður til afplánunar fylgja með upplýsingar um samfélagsþjónustu ásamt umsóknareyðublaði. Umsókn skal skila til Fangelsismálastofnunar eigi síðar en viku áður en hann á upphaflega að hefja afplánun samkvæmt bréfinu.
Skilyrði þess að samfélagsþjónusta komi til álita eru:
- Að dómþoli hafi óskað eftir því skriflega við Fangelsismálastofnun eigi síðar en viku áður en hann átti upphaflega að hefja afplánun fangelsisrefsingar samkvæmt boðunarbréfi.
- Að dómþoli eigi ekki mál til meðferðar hjá lögreglu, ákæruvaldi eða dómstólum, þar sem hann er grunaður um refsiverðan verknað.
- Að dómþoli teljist hæfur til samfélagsþjónustu. Áður en metið er hvort dómþoli teljist hæfur til samfélagsþjónustu og þar með talið hvort líklegt er að hann geti innt hana af hendi skal fara fram athugun á persónulegum högum hans. Mæti dómþoli ekki til viðtals í þessu skyni skal almennt synja beiðni um samfélagsþjónustu.
- Að dómþoli afpláni ekki fangelsisrefsingu eða sæti gæsluvarðhaldi.
Þegar fangelsisrefsing er fullnustuð með samfélagsþjónustu jafngildir 40 klukkustunda samfélagsþjónusta eins mánaðar fangelsisrefsingu. Hafi gæsluvarðhald komið til frádráttar fangelsisrefsingu skal taka tillit til þess við útreikning á fjölda klukkustunda.
Fangelsismálastofnun ákveður hvort fangelsisrefsing verði fullnustuð með samfélagsþjónustu eða ekki.
Ef umsókn um samfélagsþjónustu er synjað getur dómþoli kært þá niðurstöðu til Innanríkisráðuneytisins.
Ef samfélagsþjónusta er samþykkt ákveður Fangelsismálastofnun hvaða samfélagsþjónustu dómþoli sinni í hverju tilviki. Sama gildir um á hve löngum tíma hún er innt af hendi, en sá tími skal þó aldrei vera skemmri en 2 mánuðir.
Samfélagsþjónusta skal bundin eftirfarandi skilyrðum:
Að dómþoli hljóti ekki kæru fyrir refsiverðan verknað á þeim tíma sem samfélagsþjónusta er innt af hendi.- Að dómþoli sæti umsjón og eftirliti Fangelsismálastofnunar eða annars aðila sem hún ákveður þegar samfélagsþjónusta er innt af hendi.
Enn fremur má binda samfélagsþjónustu eftirfarandi skilyrðum:
- Að dómþoli hlíti fyrirmælum umsjónaraðila um dvalarstað, menntun, vinnu, umgengni við aðra menn og iðkun tómstundastarfa.
- Að dómþoli neyti ekki áfengis eða ávana- og fíkniefna
Vakin er athygli á því að heimilt er, samkvæmt 40. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016 að krefjast þess að dómþoli undirgangist rannsókn á öndunarsýni eða blóð- og þvagrannsókn til að athuga hvort hann hafi rofið skilyrði. Synjun dómþola á slíkri rannsókn gildir sem rof á skilyrðum samfélagsþjónustu.
- - -
Ef beiðni um samfélagsþjónustu er samþykkt:
Þegar samfélagsþjónusta hefur verið veitt fær dómþoli upplýsingar þar um og í framhaldi af því er honum birt skírteini þar sem fram koma skilyrði fyrir veitingu samfélagsþjónustu (sjá hér að ofan). Dómþoli samþykkir skilyrðin með undirritun sinni.
Vakin er athygli á því að áður en samfélagsþjónusta hefst er dómþola kynntar ítarlega þær reglur sem gilda um samfélagsþjónustu og staðfesting hans fengin á því að hann vilji hlíta þeim. Sama gildir um viðbrögð við brotum á þessum reglum.
Í upphafi er gerð vinnuáætlun sem dómþola ber að fylgja. Fulltrúi á vegum Fangelsismálastofnunar fylgist reglulega með viðkomandi aðila og fer í heimsóknir á vinnustaði til að fylgjast með að staðið sé við vinnuáætlunina.
Rof á skilyrðum samfélagsþjónustu
Ef dómþoli uppfyllir ekki lengur skilyrði sem honum voru sett eða rýfur þau eða sinnir samfélagsþjónustu ekki með fullnægjandi hætti ákveður Fangelsismálastofnun hvort skilyrðum hennar skuli breytt, tími sem samfélagsþjónusta er innt af hendi skuli lengdur eða hvort heimild til fullnustu með samfélagsþjónustu verði afturkölluð og fangelsisrefsing afplánuð í fangelsi.
Þegar rof á skilyrðum samfélagsþjónustu eða meint afbrot er ekki alvarlegt eða ítrekað skal veita áminningu áður en ákveðið er að fangelsisrefsing skuli afplánuð.
Ef ákveðið er að fangelsisrefsing skuli afplánuð í fangelsi skal reikna tímalengd eftirstöðva út með hliðsjón af þeirri samfélagsþjónustu sem þegar hefur verið innt af hendi.
Þegar eftirstöðvar fangelsisrefsingar, sem að hluta hefur verið fullnustuð með samfélagsþjónustu, eru afplánaðar er heimilt að veita reynslulausn af eftirstöðvunum skv. 80. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016 þannig að helmingur og tveir þriðju hlutar reiknist af óafplánuðum eftirstöðvum refsitímans.
Spurningar og svör varðandi samfélagsþjónustu í stað fangelsisrefsingar.
Upplýsingar um fjölda umsókna um samfélagsþjónustu í stað óskilorðsbundinna fangelsisrefsinga og afgreiðslur þeirra árin 1995 - 2010 (Staða 15. apríl 2011).